Holtsbúð 27 – Suðurhraun 10 · 210 Garðabær

Gerplustræti 25-27, Mosfellsbæ

Fjölbýlishús

Tölvumynd af Gerplustræti 25-27 í Mosfellsbæ

Tölvumynd af Gerplustræti 25-27 í MosfellsbæFjölbýlishús · 24 íbúðir · Tölvumynd

Gerplustræti 25-27 er 24 íbúða staðbyggt fjölbýlishús. Stærð hússins er um 4500 m². Húsið skiptist í tvo matshluta sem stallast í lóðinni. Neðri helmingur hússins er númer 25 við Gerplustræti og efri hlutinn er númer 27. Neðanjarðar undir norðvesturhluta lóðar og hluta húss er óupphituð opin bílageymsla sem hægt er að læsa með stálrimlarennihliði, í kjallara eru sérgeymslur íbúða ásamt inntaksklefa og hjóla og vagnageymslum. Á 1. hæð er gert ráð fyrir að innrétta megi íbúðir til að mæta þörfum hreyfihamlaðra. Stigahús með lyftu eru tvö staðsett fyrir miðju svalaganga.

Aðal burðarvirki byggingarinnar er úr járnbentri steinsteypu. Þak yfir efstu hæð er gert úr trésperrum, heilklætt og einangrað með steinull, gifsklætt á grind að innanverðu.

Gluggar eru timbur / ál, ísettir eftir steypu. Útveggir byggingarinnar eru klæddir loftræstri utanhúss klæðningu í flokki 1. Um er að ræða bæði slétta og báraða málmklæðningu.

Meðhönnuður: Jón Guðmundsson arkitekt.

Staðsetning
Mosfellsbær
Flokkur
Fjölbýlishús
Íbúðir
24
Stærð
4.500 m²
Mynd
Tölvumynd

Hafðu samband
um næsta verk.

Jón Hrafn Hlöðversson er framkvæmdastjóri og verkefnisstjóri allra verkefna stofunnar. Hann er húsasmiður og byggingafræðingur að mennt og hefur unnið að margvíslegum verkefnum í verktaka og hönnunargeiranum.

Sími
862-7102
Netfang
Heimilisfang
Holtsbúð 27 – Suðurhraun 10
210 Garðabær