Holtsbúð 27 – Suðurhraun 10 · 210 Garðabær

Freyjubrunnur 25-27, Reykjavík

Fjölbýlishús

Tölvumynd af Freyjubrunni 25-27 í Reykjavík

Tölvumynd af Freyjubrunni 25-27 í Reykjavík8 íbúðir · 1.385 m² · Tölvumynd

Byggingin er 8 íbúða staðbyggt fjölbýlishús, um 1385 m² að stærð.

Á 1. hæð eru innbyggðar bílageymslur, sérgeymslur íbúða ásamt inntaksklefa og hjóla og vagnageymslum. Einnig er þar að finna 2. herbergja íbúð sem er sérhönnuð fyrir fatlaða. Á 2. hæð eru 4 íbúðir og á 3. hæðinni eru þrjár íbúðir þar sem einni íbúðinni tilheyra þaksvalir að hluta. Stigahús er með lyftu. Þak stigahúss er bogaþak.

Aðal burðarvirki byggingarinnar er úr járnbentri steinsteypu. Þak yfir lyftuhúsi er uppstólað og borið uppi af trjáviðum.

Gluggar eru hefðbundnir ísteyptir timburgluggar úr þurrkaðri furu.

Útveggir byggingarinnar eru sléttpússaðir. Steinveggir eru „off white“ og gluggar og hurðir eru granítgráir í RAL 7016.

Meðhönnuður: Björgvin Halldórsson byggingafræðingur.

Staðsetning
Reykjavík
Flokkur
Fjölbýlishús
Íbúðir
Átta
Stærð
1.385 m²
Gluggar og hurðir
RAL 7016
Mynd
Tölvumynd

Hafðu samband
um næsta verk.

Jón Hrafn Hlöðversson er framkvæmdastjóri og verkefnisstjóri allra verkefna stofunnar. Hann er húsasmiður og byggingafræðingur að mennt og hefur unnið að margvíslegum verkefnum í verktaka og hönnunargeiranum.

Sími
862-7102
Netfang
Heimilisfang
Holtsbúð 27 – Suðurhraun 10
210 Garðabær